Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Framkvæmdastjóri FÍB segir verktaka bera mikla ábyrgð varðandi svifryksmyndun

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, segir í grein á vef félagsins að verklag Vegagerðarinnar við hreinsun stofnbrauta á höfuðborgarsvæðinu sé langt undir viðmiðum á hinum Norðurlöndunum og loftslags- og lýðheilsumarkmiðum stjórnvalda. Vegagerðin geri ráð fyrir hreinsun brautanna fjórum sinnum á ári. Fyrsta hreinsun hafi verið óvenjusnemma í ár enda ástandið orðið slæmt en ekki tekist að klára verkið áður en hitinn fór undir frostmark. Runólfur hvetur til hugarfars- og verklagsbreytingar þeirra opinberu aðila sem sinni gatnahreinsun þannig að tillit sé tekið til aðstæðna hverju sinni. Pólitískir fulltrúar almennings verða að tryggja fjármagn til framkvæmda í nafni lýðheilsu og öryggis vegfarenda, segir Runólfur, og spyr hver beri ábyrgð á að ekkert rykbindiefni hafi verið til í landinu
Framkvæmdastjóri FÍB segir verktaka bera mikla ábyrgð varðandi svifryksmyndun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta