Donald Trump Bandaríkjaforseti brást hart við þeim úrskurði Hæstaréttar að honum væri ekki heimilt að leggja tolla á viðskiptaríki með vísun í ákvæði laga sem veita neyðarrétt til slíks. Hann undirritaði tilskipun um 10 prósenta toll á öll ríki heims í kvöld, sem byggir á grein í viðskiptalögum frá 1974 og enginn forseti hefur beitt áður.Ákvæðið heimilar forseta að setja allt að 15 prósenta toll á öll lönd til að taka á málum sem tengjast viðskiptahalla, sem megi þó aðeins gilda í 150 daga, nema þingið samþykki framlengingu.Þessir 10 prósenta viðbótartollar sem Trump Bandaríkjaforseti hefur fyrirskipað á innflutning frá öllum ríkjum eiga að ganga í gildi næsta þriðjudag, 24. febrúar. Einhverjar undantekningar verða veittar, meðal annars hvað snertir lyfjainnflutning og þær vörur sem koma t