Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Útkall slökkviliðs reyndist án tilefnis

Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var nýverið sent í útkall í Æsufelli í Breiðholti. Steinþór Darri Þorsteinsson varðstjóri staðfestir þetta við fréttastofu en segir að aðgerðin geti reynst minni háttar.Tilkynning hafi borist um reyk í íbúðarhúsi í Æsufelli. Slökkvilið sé enn ekki komið á vettvang og umfangið óvíst að svo stöddu. Steinþór segir aðeins eina tilkynningu hafa borist um mögulegan eldsvoða.Uppfært 21:20:Steinþór Darri segir útkallið hafa reynst tilefnislaust. Reykur hafi átt upptök í eldamennsku á svölum.RÚV / Ragnar Visage
Útkall slökkviliðs reyndist án tilefnis

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta