Reiknivilla í einföldum prósentureikningi varð til þess að dómsmálaráðherra sagði hærra hlutfall erlendra ríkisborgara en rétt er hafa sætt ákæru fyrir brot á almennum hegningarlögum árið 2023.Frá þessu er greint á fréttavefnum Gímaldið sem bendir á að hlutfallið nemi 25,5 prósentum miðað við uppgefnar tölur um fjölda en ekki 34,2 líkt og segir í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Diljár Mistar Einarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins.Villan felist í því að nota fjölda ákærðra útlendinga deilt með fjölda Íslendinga, í stað þess að deila með heildarfjölda eins og kennt sé í grunnskólastærðfræði. Svo virðist sem villan sé aðeins á þessum eina stað í svarinu.Gímaldið hefur fengið staðfestingu ráðuneytisins á að mistök hafi verið gerð við útreikninginn og að Alþingi leiðrétti svarið og