Kanadíski leikarinn William Shatner er hvergi af baki dottinn þótt 94 ára sé og boðar útgáfu þungarokksplötu. „Þegar maður kemst á þennan aldur hægir maður ekki á sér heldur hækkar í botn,“ sagði Shatner í færslu á samfélagsmiðlum ásamt mynd þar sem hann heldur á rafmagnsgítar frammi fyrir rauðlituðum, reykfylltum bakgrunni. Leikarinn boðar mikið stuð með fulltingi 35 þungarokksmeistara og að á plötunni verði nýtt efni ásamt klassík frá hljómsveitum á borð við Black Sabbath, Judas Priest og Iron Maiden. Hann hlaut alþjóðlega frægð með túlkun sinni á geimskipherranum James T. Kirk í Star Trek á sjöunda áratugnum og löggunni TJ Hooker í samnefndum sjónvarpsþáttum. Shatner hlaut Golden Globe og Emmy-verðlaun fyrir hlutverk sitt sem Denny Crane í lögfræðiþáttunum Boston Legal á fyrsta áratug a