Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Minnst tólf drepin í árásum Ísraelshers

Stjórnvöld í Líbanon segja tólf hafa verið drepna í loftárásum Ísraelshers á landið austan- og sunnanvert í gær og 24 hafa særst, þar af þrjú börn. Kona gengur framhjá húsum í flóttamannabúðum þar sem sjá má myndir af leiðtogum Írans og Hezbollah.EPA / WAEL HAMZEHTíu týndu lífi í árásum á Bekaa-dal og tveir í stærstu flóttamannabúðum Palestínumanna nærri borginni Sidon. Herinn segist hafa beint atlögum sínum að stjórnstöðvum uppreisnarsveita Hamas annars vegar og Hezbollah hins vegar, sem segja háttsettan liðsmann hafa fallið. Ísraelsmenn gera iðulega árásir á Líbanon þrátt fyrir vopnahléssamkomulag frá nóvember 2024 sem ætlað var að stöðva átök við Hezbollah sem staðið höfðu rúmt ár.
Minnst tólf drepin í árásum Ísraelshers

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta