Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kúnstir nýjasta ráðherra ríkisstjórnarinnar

Gísli Marteinn fór yfir helstu fréttir vikunnar í sjónvarpinu í kvöld. Gísli rýndi sérstaklega í ummæli Jóns Gunnarssonar á Alþingi á þriðjudag, er hann lét Ragnar Þór Ingólfsson, nýjasta ráðherra ríkisstjórnarinnar, heyra það. Jón baðst að vísu afsökunar á ummælunum daginn eftir.Ragnar Þór leit við í settið til Gísla og fór yfir málið. Hann segist að sjálfsögðu hafa fyrirgefið Jóni.Var þetta skellur fyrir þig? Að vera kallaður götustrákur?„Nei ég bara áttaði mig ekki á þessu fyrr en nokkrum dögum seinna. Þetta þótti nú ekki vera mjög niðrandi í Breiðholtinu í gamla daga, og frekar upphefð heldur en hitt,“ svaraði Ragnar.En heimsókn Ragnar lauk ekki þar. Í framhaldi rifjuðu þeir Gísli upp gamla takta Ragnars en hann var rappari á árum áður.
Kúnstir nýjasta ráðherra ríkisstjórnarinnar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta