Eftir jafnan og skemmtilegan fyrri hálfleik þá varð frábær þriðji leikhluti til þess að Valsmenn báru sigur úr býtum á Álftanesi í dag. Keyshawn Woods skoraði 16 stig í leikhlutanum og keyrði liðið áfram. Lokatölur 87-108 í lokaleik 18. umferðar Bónus deildar karla í körfuknattleik.