Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var nýverið sent í útkall í Æsufelli í Breiðholti. Steinþór Darri Þorsteinsson varðstjóri staðfestir þetta við fréttastofu en segir að aðgerðin geti reynst minni háttar.Tilkynning hafi borist um reyk í íbúðarhúsi í Æsufelli. Slökkvilið sé enn ekki komið á vettvang og umfangið óvíst að svo stöddu. Steinþór segir aðeins aðila hafa tilkynnt um mögulegan eldsvoða.RÚV / Ragnar Visage