Stjörnumenn lentu óvænt í kröppum dansi á móti Ármanni í Laugardalshöllinni í 18. umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld en tókst að vinna upp forskot heimamanna og tryggja sér nauman sigur. Orri Gunnarsson skoraði sigurkörfuna tveimur sekúndum fyrir leikslok eftir að hafa náð sóknarfrákasti en lokatölur í leiknum urðu 88-90 Stjörnunni í vil.