Stjörnumenn lentu óvænt í kröppum dansi á móti Ármanni í Laugardalshöllinni í Bónus-deild karla í körfubolta í kvöld en tókst að vinna upp forskot heimamanna og tryggja sér nauman sigur. Orri Gunnarsson skoraði sigurkörfuna tveimur sekúndum fyrir leikslok eftir að hafa náð sóknarfrákasti.