Tæplega þriðjungur allra félagsmanna í Félagsráðgjafafélagi Íslands svaraði könnun um ofbeldi í starfi sem siðanefnd félagsins sá um að framkvæmda. Spurningalisti var sendur á 500 félagsráðgjafa og um þrjátíu prósent svöruðu.86% þeirra sem svöruðu sögðust hafa orðið fyrir munnlegu ofbeldi í starfi, og sama hlutfall upplifað ógnandi framkomu. Þá höfðu 43% fengið hótanir um líkamlegt ofbeldi og tæplega þriðjungur fengið hótanir gegn heimili eða fjölskyldu. 12% greindu frá því að hafa orðið fyrir líkamlegu ofbeldi og aðeins 6,6% sögðust aldrei hafa orðið fyrir ofbeldi eða ógnunum í starfi. ÁHYGGJUEFNI HVE OFT BÖRNUM OG FJÖLSKYLDU ER HÓTAÐ „Við höfum gríðarlegar áhyggjur af því hversu oft er verið að hóta fjölskyldumeðlimum og börnum. Þannig að félagsráðgjafar þurfa að gera ákveðnar varúðar