Óvíst er hvað verður um líforkuver sem til stóð að reisa í Dysnesi við Eyjafjörð fyrir nærri þrjá milljarða. Um sextíu milljónir króna hafa þegar farið í undirbúning verkefnisins, sem átti meðal annars að koma í veg fyrir að hér væru urðuð ríflega þúsund tonn af dýraleifum á ári ólöglegaÍ ágúst 2024 kynnti þáverandi matvælaráðherra, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, opnun vefsins Líforka.is og stuðning ríkisstjórnarinnar við byggingu 2,9 milljarða króna líforkuvers við Eyjafjörð, sem þá hafði verið lengi til umræðu.Þróunarfélag var stofnað utan um verkefnið, þangað var ráðinn framkvæmdastjóri og stjórnarmenn skipaðir, meðal annars frá ráðuneytunum tveimur; þá matvæla, nú atvinnuvegaráðuneyti, og umhverfisráðuneyti. Eins voru fulltrúar frá sveitarfélögunum tveimur sem málið varðaði, Akureyrarbæ