Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu leitar eftir einstaklingi í stöðu yfirlögregluþjóns á Farsældarsvið embættisins.Farsældarsviðið er nýtt svið innan lögreglunnar og ætlað að vera þverfaglegt innan embættisins sem hefur það hlutverk að efla farsæld og öryggi barna og ungmenna, tryggja barnvæna nálgun við meðferð og rannsókn mála og stuðla að snemmtækri íhlutun, forvörnum og samfélagslöggæslu.Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson, kynningarfulltrúi Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir sviðið vinna í samráði við sveitarfélög og aðra samstarfsaðila meðal annars með það að markmiði að bæta skilvirkni og árangur í meðferð heimilisofbeldismála og stuðla að upplýsingamiðlun, öryggi þolenda og forvörnum í samfélaginu.