EFTA dómstóllinn hefur úrskurðað að lögsaga samningsins um Evrópska efnahagssvæðið nái til landgrunns EES-ríkjanna Noregs og Íslands, en ekki aðeins landsvæði, landhelgi og efnahagslögsögu, eins og norsk stjórnvöld hafa haldið fram.Dómur EFTA dómstólsins var kveðinn upp í gær, en með honum er verið að svara fyrirspurn frá Hæstarétti Noregs um skilgreininguna; tekist hefur verið á um hana í máli sem Hæstiréttur hefur haft til meðferðar og snýst um tilskipun frá Evrópusambandinu varðandi réttindi launþega sem unnu á skipi sem notað var í tengslum við olíuvinnslu á landgrunninu úti fyrir ströndum Noregs.„Þetta er þýðingarmikill dómur og skiptir talsvert miklu máli fyrir Norðmenn, sem hafa auðvitað verið að horfa til þeirra miklu hagsmuna sem þeir hafa af olíuvinnslu á landgrunninu,“ segir Gun