Lagt er til að stök ferð fyrir minnstu bílana yfir nýja Ölfusárbrú verði 495 krónur en áætlað er að um 64% vegfarenda nýti sér enn gömlu brúna eftir að sú nýja verður opnuð. Þetta kemur fram í stöðuskýrslu Vegagerðarinnar um nýja Ölfusárbrú.Þar er lagt til að magnafsláttur verði veittur fyrir bíla undir 3,5 tonnum, allt að 50% afsláttur fyrir 100 ferðir. Gjald fyrir þyngri ökutæki yrði á bilinu 800 til 1.700 krónur.Stefnt er að því að brúin verði opnuð á næsta ári. Eldri brúin verður enn í notkun með þungatakmörkunum. Umferð um eldri Ölfusárbrú var að meðaltali 14.500 bílar á dag árið 2023, 3,5% meiri en árið á undan.Vegagerðin býst við því að um nýja brú fari mestmegnis gegnumstreymisumferð, sem sagt vegfarendur sem stöðva stutt á Selfossi eða alls ekki. Án veggjalds áætlar Vegagerðin að