EPA / JOHN G. MABANGLOOlíuverð náði seint í gær sínu hæsta verði í hálft ár vegna óvissu um samninga milli Bandaríkjanna og Íran. Verð á Brent-hráolíu fór í ríflega 72 dali á tunnuna.Greinendur segja að erfiðara sé að finna leið til að slá á spennuna milli ríkjanna þegar það virðist sífellt ólíklegra að samningar náist. Þá sé bandaríski herinn að flytja hergögn til Miðausturlanda. Þetta veki svo aftur óvissu um birgðastöðu olíu til framtíðar.Trump gaf seint í gærkvöld Íran tíu daga til að ná samkomulagi um kjarnorkuvopn, annars myndi eitthvað slæmt gerast.