Ulrikke býður inn í stofuna þar sem hún býr i gamla bænum í Nuuk. „Afi minn byggði þetta hús,“ segir hún. „Þannig að við höfum verið hér í áttatíu ár.“ Foreldrar hennar búa á efri hæðinni. Brosandi býður hún upp á kaffi og dregur fram kaffibolla frá Íslandi. Á gólfinu dormar hundur. Ulrikke strýkur honum og segir hann vera traustan...