Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Dæmdur fyrir brot gegn stjúpdóttur sinni

Landsréttur dæmdi karlmann í gær til eins árs fangelsisvistar og til greiðslu tveggja milljóna króna í miskabætur. Hann var sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni þegar hún var sjö til átta ára gömul.Maðurinn hélt því fram að hann væri haldinn kynferðislegri djúpsvefnsröskun. Þessari málsvörn hafnaði dómstóllinn og vísaði til matsgerðar dómskvadds matsmanns. Hann sagði afar ólíklegt að maðurinn hefði verið sofandi og ómeðvitaður um eigin gjörðir. Það byggði á svefnrannsóknum og upplýsingum um svefnhegðun mannsins.Húsnæði Landsréttar í Kópavogi.RÚV / Ragnar Visage
Dæmdur fyrir brot gegn stjúpdóttur sinni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta