Birna hefur einkum fengist við kvikmyndatónlist. Hún gerði meðal annars tónlist fyrir þættina Kennarastofan og aðra þáttaröð af Sönnum íslenskum sakamálum. Undanfarið hefur hún verið að reyna meira fyrir sér við gerð eigin tónlistar og stefnir að útgáfu fyrstu smáskífu sinnar.Birna segir mikinn mun á því að semja tónlist fyrir kvikmyndir eða þætti og svo fyrir sig sjálfa. „Þegar þú ert með kvikmyndina ertu alltaf með eitthvað viðfangsefni til að elta, styðja og lyfta. Ég hef verið mjög góð í að setja mig í spor annarra en minna vitað hver ég er og það er svo gott að semja tónlist fyrir sjálfan sig því þá þarftu að komast að því hver þú ert og hvað þú vilt segja,“ segir Birna.Landinn er á dagskrá alla sunnudaga kl. 19.45.