Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Blaðamaður handtekinn fyrir að móðga forsetann

Tyrkneski blaðamaðurinn Alican Uludag, sem hefur unnið fyrir þýska fjölmiðilinn Deutsche Welle, var handtekinn í gær. Hann er ásakaður um að hafa breitt út rangar fréttir og móðgað forsetann. Samtökin Blaðamenn án landamæra segja að handtakan sé hluti af ofsóknum stjórnvalda gegn blaðamönnum. Þau fordæmdu handtökuna. Barbara Massing, yfirmaður Deutsche Welle, sagði það fela í sér skipulagða ógnun að láta 30 lögreglumenn handtaka blaðamann, koma fram við hann eins og ótíndan glæpamann og flytja hann frá höfuðborginni Ankara til Istanbúl til réttarhalda.Uludag kemur fyrir rétt í dag.Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, sem blaðamaðurinn er sakaður um að hafa móðgað.AP / Khalil Hamra
Blaðamaður handtekinn fyrir að móðga forsetann

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta