Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hörmung á Hólmavík

Vetrarhátíðin „Hörmungadagar á Hólmavík“ er mótsvar við „Hamingjudögum“ og er alls kyns hörmulegum atburðum gert hátt undir höfði á versta tíma ársins. Þó er glettnin ekki langt undan.Andri Freyr Arnarsson hörmungastóri skipulagði þriggja daga dagskrá og segir margt í boði fyrir alla aldurshópa. Má nefna sungin harmakvæði, volæðisfyrirlestur, tónlist, myndlistarsýningu og draugagöngu sem dæmi.„Þetta er náttúrulega hörmungarástand hér í bænum því við höfum enga innviði til að taka á móti öllum þessum gestum. Við buðum frítt á tjaldsvæðið og allur matur er eiginlega búinn“.Þrátt fyrir myrkur og hremmingar ríkir gleði yfir hátíðinni. Yngstu gestirnir hlýddu á draugasögur og fengu leiðsögn við að teikna skrímsli og forynjur.Um tuttugu listamenn komu fram á Hörmungadögum í ár.
Hörmung á Hólmavík

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta