Búningahönnuðurinn Karen Sonja Mayen Briem fæddist í Mexíkóborg og bjó þar til níu ára aldurs. Hún styttir þó nafnið sitt iðulega í Karen Briem af leti. „Mér fannst þetta allt of mikið að segja og ef maður er að fylla út umsóknir þá er aldrei pláss fyrir nafnið,“ segir hún í samtali við Sigurlaugu Margréti Jónasdóttur í Segðu mér á Rás 1.Karen hefur hannað búninga fyrir ólíka miðla og má þar nefna leikhús, óperur, sjónvarpsþætti og hljómsveitir því hún hannaði búningana fyrir Hatara þegar hljómsveitin tók þátt í Eurovision 2019.Mayen er ættarnafn föður hennar og Briem er ættarnafn móður hennar. Hún segist muna mjög vel eftir lífinu í Mexíkóborg enda hafi það verið mjög ólíkt lífinu á Íslandi, sérstaklega hvað varðar frelsi barna. „Ég held að engin manneskja hafi nokkurn tímann verið jafn s