Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Húsleit haldið áfram á heimili prinsins fyrrverandi

Rannsóknarlögreglumenn halda í dag áfram húsleit á Royal Lodge, áður heimili Andrews Mountbatten-Windsor í Berkshire, samkvæmt frétt BBC nú í morgunsárið. Mountbatten-Windsor var látinn laus síðdegis í gær eftir að hann var handtekinn vegna gruns um brot í opinberu starfi. Það var í fyrsta skipti um fjögurra alda skeið sem nokkur úr konungsfjölskyldunni sætir handtöku. Prinsinn fyrrverandi hefur þvertekið fyrir að hafa brotið nokkuð af sér en rannsókn lögreglunnar í Thames-dal beinist að því hvort hann hafi deilt viðkvæmum upplýsingum með kynferðisafbrotamanninum Jeffrey Epstein þegar hann var viðskiptaerindreki Bretlands. Mountbatten-Windsor hefur ekki svarað beiðnum BBC um viðbrögð við handtökunni í gær. Hann sneri heim á Sandringham-setrið í gær. Hefðbundið er að fólki sé sleppt fljótle
Húsleit haldið áfram á heimili prinsins fyrrverandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta