Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Gripdeildir og innbrot í verslanir

Lögreglan rannsakar þjófnað og innbrot í verslanir.Birgir Þór HarðarsonVerslunareigendur á höfuðborgarsvæðinu urðu nokkuð fyrir barðinu á hnuplurum og innbrotsþjófum seinni partinn í gær að því er fram kemur í morgunskeyti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þrír sem létu greipar sópa í verslun í Vesturborginni eru þekktir hjá lögreglu og mál þeirra er í rannsókn líkt og innbrotið. Lögreglan hafði samband við foreldra ungmenna sem tilkynnt var að hefðu sparkað í hurð á heimahúsi. Þrír gistu fangageymslur í morgun.
Gripdeildir og innbrot í verslanir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta