Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Milli 3 og 4 prósent íbúa Gaza týndu lífi fyrstu mánuði stríðsins

Umtalsvert fleiri létu lífið á fyrstu fimmtán mánuðum Gaza-stríðsins en hingað til hefur verið talið. Tölur heilbrigðisyfirvalda hafa verið taldar áreiðanlegar. Ný rannsókn sem birtist í vísindaritinu Lancet leiðir í ljós að fjöldi þeirra sem drepnir voru er 75 þúsund en ekki 49 þúsund líkt og heilbrigðisráðuneyti Hamas hafði áður greint frá.Í greininni segir að þrjú til fjögur prósent íbúa Gaza hafi látið lífið með voveiflegum hætti þessa fimmtán mánuði, að stærstum hluta konur, börn og roskið fólk, auk þess sem talsvert margir létust vegna óbeinna afleiðinga árása Ísraelshers.Höfundar segja rannsóknina þá fyrstu óháðu sem gerð hefur verið á dánartíðni á Gaza og byggir á samanburði á íbúafjölda. Fjöldi þeirra sem týnt hafa lífi á Gaza hefur oft verið dreginn í efa en Sameinuðu þjóðirnar o
Milli 3 og 4 prósent íbúa Gaza týndu lífi fyrstu mánuði stríðsins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta