„Það sem er alvarlegast í þessu máli er að meirihlutinn hafnar því að fá lögfræðilegt álit á þeim álitaefnum sem liggja til grundvallar í málinu og snúa að því að varin séu stjórnarskrárbundin atvinnuréttindi. Þetta er eins og að menn ætluðu sér að afnema fiskveiðistjórnunarkerfið með einu pennastriki og úthluta aflaheimildum með öðrum hætti,“ segir Jón Gunnarsson alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við Morgunblaðið.