Neðri deild argentínska þingsins hefur samþykkt mjög umdeilt lagafrumvarp sem þrengir mjög að atvinnufrelsi í landinu.Frumvarpinu hefur verið mótmælt harðlega í Argentínu.EPA / JUAN IGNACIO RONCORONIVerkalýðsfélög hafa mótmælt frumvarpinu hástöfum og segja það auðvelda fyrirtækjum að segja upp starfsfólki, draga úr verkfallsrétti og lengja vinnudaginn. Efnt var til allsherjarverkfalls í Argentínu í gær til að andæfa frumvarpinu.Það fór gegnum öldungadeild þingsins í síðustu viku og neðri deildin samþykkti það með 135 atkvæðum gegn 115. Öldungadeildin þarf að fjalla um frumvarpið með áorðnum breytingum áður en það verður að lögum.