Fimm ríki hafa boðað þátttöku í öryggissveitum á Gaza sem eru hluti vopnahlésskilmálanna milli Ísraels og Hamas.Palestínsk fjölskylda situr að snæðingi við tjald sitt á Gaza.EPA / MOHAMMED SABERFrá þessu var greint að loknum fyrsta fundi Friðarráðs Donalds Trump Bandaríkjaforseta í gær. Sveitunum er meðal annars ætlað að skipuleggja fjárútlát vegna uppbyggingar á Gaza.Löndin eru Albanía, Kósóvó, Kasakstan og Marokkó auk Indónesíu sem þegar hafði heitið átta þúsund manna liði um leið og starfsemi sveitanna hefst. Yfirmaður öryggissveitanna, Bandaríkjamaðurinn Jasper Jeffers, fagnaði ákvörðun ríkjanna og sagði Indónesa verða næstráðandi á eftir Bandaríkjamönnum.