Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Karlmaður dæmdur í níu ára fangelsi fyrir ítrekaðar nauðganir

Karlmaður á sextugsaldri var í gær dæmdur til níu ára fangavistar í Landsrétti fyrir að nauðga ítrekað konu með þroskahömlun á árunum 2016 til 2020. Konan var undirmaður mannsins í verslun þar sem bæði störfuðu um nokkurra ára skeið.Hún hafi ekki getað spornað við verknaðinum vegna fötlunar sinnar og aðstöðumunar, að því er segir í dómnum og það hafi maðurinn nýtt sér. Hann kvaðst ekki hafa gert sér grein fyrir að konan stríddi við þroskahömlun og að gagnkvæm hrifning hafi verið milli þeirra.Maðurinn var einnig sakfelldur fyrir að þvinga konuna til hafa samræði og önnur kynferðismök við aðra karlmenn sem hann átti í samskiptum við á stefnumótasíðu. Enginn þeirra var ákærður í málinu.Maðurinn bar fyrir sig að konan hefði verið samþykk öllum þeim kynferðislegu samskiptum en dómskvaddur matsm
Karlmaður dæmdur í níu ára fangelsi fyrir ítrekaðar nauðganir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta