Alþjóðleg skipalest og flugfloti hlaðinn hjálpargögnum er væntanleg til Kúbu 21. mars. Landið hefur glímt við þungan efnahagsvanda og olíuhafnbann Bandaríkjastjórnar hefur bætt gráu ofan á svart.Skipuleggjendur aðstoðarinnar segja í yfirlýsingu að bágstöddum Kúbverjum verði færð matvæli, lyf og lækningavörur auk annarra lífsnauðsynja. „Hafnbann Bandaríkjastjórnar hefur stöðvað olíuinnflutning og þar með flugferðir til og frá landinu ásamt því að auka álag á sjúkrahús og aðra mikilvæga innviði,“ segir í yfirlýsingunni.Hópurinn gengur undir heitinu Nuestra America Convoy to Cuba og samanstendur af fulltrúum verkalýðsfélaga, þingmönnum og þekktum einstaklingum á borð við sænska aðgerðasinnann Gretu Thunberg.Hún segist ekki aðeins styðja frumkvæðið vegna brýnnar þarfar Kúbverja heldur sé alþjó