Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ákærðir fyrir dráp hægri-öfgamanns í Frakklandi

Þrír hafa verið ákærðir fyrir dráp Quentins Deranques í síðustu viku. Deranque er lýst sem hægri-öfgamanni en ráðist var á hann á mótmælafundi í Lyon í Frakklandi í síðustu viku. Hópur öfga-hægrimanna stóð að mótmælum er Rima Hassan, þingmaður Evrópuþingsins, hélt ræðu við háskóla í Lyon 12. febrúar.Hið minnsta sex manns réðust á Deranque með þeim afleiðingum að hann varð fyrir heilaskaða og lét lífið. Alls hafa ellefu manns verið handteknir fyrir aðild sína í árásinni. Allir tengjast þeir vinstrihreyfingum.Tveir hafa þegar verið ákærðir fyrir að bana Deranque en einn er ákærður til viðbótar. Það er Jacques-Elie Favrot, aðstoðarmaður þingmannsins Raphael Arnault, sem er ákærður fyrir aðild að drápinu. Arnault er þingmaður harðlínuvinstriflokksins Frakkland óbugað (f. La France Insoumise).S
Ákærðir fyrir dráp hægri-öfgamanns í Frakklandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta