Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Írani þurfa að komast að samkomulagi sem hald er í um kjarnorkumál á næstu tíu dögum, ella muni eitthvað illt henda þá. Donald Trump sagði á stofnfundi Friðarráðsins í dag að það hefði sýnt sig gegnum árin að erfitt væri að ná samkomulagi við Íran.Þarlendir ráðamenn segja í bréfi til Antonio Guterres, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, orð Trumps skapa raunverulega hættu á hernaði, þeir vilji hvorki auka á spennu milli ríkjanna né fara í stríð.Stjórnin ætli heldur ekki að hafa frumkvæði að átökum en muni svara árásum af fullri hörku. Skömmu áður hafði ísraelski forsætisráðherrann Benjamín Netanjahú varað klerkastjórnina við afleiðingum árása á Ísrael.„Viðbrögðin verða harðari en þeir geta ímyndað sér,“ sagði Netanjahú. Bandarískir miðlar sögðu í g