Einn af dælubílum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Mynd úr safni.RÚV / Ragnar VisageSlökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að Háskólanum í Reykjavík rétt fyrir klukkan níu í kvöld vegna óhapps í efnafræðistofu, líkt og varðstjóri orðaði það í samtali við fréttastofu. Hann segir að sá sem í stofunni var hafi komið sér þaðan út og að slökkviliðsmenn hafi lofthreinsað stofuna. Enginn var í hættu að sögn varðstjórans.