Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Færa bílastæðin við Skógafoss til að vernda friðlýst svæði

Bílastæði við Skógafoss hafa verið færð fjær fossinum, til að vernda svæðið, sem er friðlýst. Leiðsögumenn eru misánægðir með breytingarnar, sem bæta nokkur hundruð metrum við gönguleið ferðamanna sem vilja skoða fossinn. „Þetta lengir stoppin hjá okkur um tuttugu mínútur eða hálftíma fyrir stórar rútur,“ segir Gunnlaugur Jónsson leiðsögumaður. „Örlítið lengri stopp hér og þar geta sett daginn úr skorðum. En nú þegar þetta er komið á þá náttúrulega lærir maður að lifa með þessu.“Skógafoss er einn vinsælasti viðkomustaður ferðamanna á Íslandi.Fossinn var friðlýstur árið 1987, suður frá þjóðveginum upp á Skógaheiði. Bílastæði voru áður við bakka árinnar neðan við fossinn, innan friðlýsts svæðis. Markmiðið með breytingunni er að vernda svæðið og bæta upplifun gesta og útsýni við fossinn.
Færa bílastæðin við Skógafoss til að vernda friðlýst svæði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta