Sigurður Reynir Gíslason rannsóknarprófessor við Háskóla Íslands og Grímur Sæmundsen stofnandi Bláa lónsins hlutu í dag heiðursverðlaun úr Verðlaunasjóði Ásu Guðmundsdóttur Wright. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, afhenti verðlaunin á Bessastöðum. Ásusjóður var stofnaður 1968 og veitir árlega viðurkenningu til þeirra sem hafa skarað fram úr á sviði vísinda og nýsköpunar.