Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var um hálftíma að ráða niðurlögum sinueldsins við Galtarlæk í Hvalfirði í dag. Björn Bergmann Þórhallsson varaslökkviliðsstjóri segir eldinn hafa reynst ósköp lítinn og að auðvelt hafi verið að vinna bug á honum.Þrír slökkviliðsbílar voru sendir á vettvang.„Það var töluverður vindur en þetta var réttu megin við þjóðveginn,“ segir Björn fréttastofu. Það hafi skipt sköpum að eldurinn gat ekki dreift mikið úr sér. Hefði hann verið fyrir neðan þjóðveginn væri sagan önnur.Búið var að slökkva í eldinum um hálf sex í kvöld.