Miðflokkurinn stefnir á að bjóða fram í nær helmingi fleiri sveitarfélögum í kosningunum í vor en fyrir fjórum árum og það sama má segja um Viðreisn. Sjálfstæðisflokkurinn býður fram í 36 sveitarfélögum og Píratar í einu - en þeir buðu fram í sex síðast. FLESTIR FLOKKAR BÚNIR AÐ ÁKVEÐA FJÖLDA SVEITARFÉLAGA SEM BOÐIÐ VERÐUR FRAM Í Sveitarstjórnarkosningar eru 16. maí. Síðast var kosið 2022 og þá voru kosnir alls 470 aðalmenn í sveitarstjórnir, 233 karlar og 237 konur. Það var í fyrsta skipti sem konur voru fleiri en karlar.Sveitarfélög á Íslandi eru 62:Stjórnmálaflokkarnir eru í óðaönn að undirbúa kosningarnar og nú liggur í grófum dráttum fyrir hvar flokkarnir bjóða fram. Víða bjóða flokkar og samtök fram saman undir ólíkum nöfnum en svona lítur þetta út hjá helstu flokkum eins og staða