Ekkert eftirlit er með áfangaheimilum og hver sem er getur rekið slíka starfsemi. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vill auka eftirlit og í úttekt hennar á áfangaheimilum sem birt var í dag kemur fram að engin lög eða reglugerðir ná yfir starfsemi heimilanna.Þau eru hvorki starfsleyfis- né eftirlitsskyld og skilyrði fyrir starfseminni því óljós, eins og segir í skýrslunni.Stofnunin vill að sömu kröfur verði gerðar og á dvalarheimilum, þeim verði mörkuð starfsumgjörð í lögum og skilgreindar verði kröfur til húsnæðis og faglegrar þjónustu. Þá verði skýrðar kröfur um reikningsskil og persónuvernd. UPPFYLLA OFT EKKI KRÖFUR UM BRUNAVARNIR Fólk dvelur á áfangaheimilum af ýmsum ástæðum, meðal annars til að afplána, eftir afplánun eða meðferð eða vegna veikinda, fötlunar eða heimilisofbeldis. En ö