Lögregla fylgdist með því í rauntíma í dag hvernig fólk var blekkt til þess að skrá sig inn á svikasíðu í nafni Skattsins og gáfu þannig brotamönnum leið til þess að hafa af því fjármuni. Gat því lögregla hringt jafnóðum í þolendur og hvatt þá til þess að vera í samskiptum við sinn viðskiptabanka.