Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Horfurnar dekkri en áður“

Fasteignamarkaðurinn hefur kólnað á undanförnum mánuðum og íbúðir seljast undir auglýstu verði. Samtök iðnaðarins greina samdrátt í byggingu íbúða næsta árið.Það rímar við nýja skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Þar segir að virkni á fasteignamarkaði hafi verið töluverð í fyrra þegar þrettánda hver íbúð á landinu gekk kaupum og sölum.Undanfarna mánuði hafi markaðurinn kólnað og færst í aukana að íbúðir á höfuðborgarsvæðinu seljist undir auglýstu verði. Í desember seldust 74 prósent íbúða undir auglýstu verði samanborið við 67 prósent í desember 2024. VÆNTINGAR UM MINNI UPPBYGGINGU ÞVERT Á ÞAÐ SEM ÞARF Undir eitt prósent stjórnenda arkitekta- og verkfræðistofa telja að verkefnum fjölgi á næstu 12 mánuðum. Tæplega 59 prósent telja að verkefnum eigi hvorki eftir að fjölga né fækka.
„Horfurnar dekkri en áður“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta