Bráðabirgðaákvæði í lögum um sveitarstjórnarkosningar vegna kosninga í Grindavík hefur verið samþykkt á Alþingi. Ákvæðið gefur þeim Grindvíkingum sem áttu lögheimili í Grindavík fyrir rýmingu 10. nóvember 2023 val um að kjósa í Grindavík eða í því sveitarfélagi sem þeir eiga nú lögheimili í. MIKILVÆGT SKREF Í ÁTT AÐ ENDURREISN BÆJARFÉLAGSINS Síðastliðið haust settu stjórnvöld af stað opið samráðsferli um næstu skref í endurreisn Grindavíkur. Grindavíkurnefnd hafði vikurnar þar á undan unnið að gerð umræðuskjals um sveitarstjórnarkosningar, stjórnskipulag og samráð í endurreisnarferli bæjarfélagsins. Umsagnarferlinu lauk í lok október og birti dómsmálaráðuneytið í desember áform um lagasetningu vegna sveitarstjórnarkosninga í Grindavík í maí næstkomandi.Árni Þór Sigurðsson, formaður Grin