Kostnaður hins opinbera vegna umframveikinda er um 19 milljarðar á ári, samkvæmt nýrri úttekt Viðskiptaráðs. Í úttektinni kemur fram að opinber starfsmaður eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum en starfsmaður með sama starfsaldur í einkageiranum. Samhliða auknum réttindum verði veikindafjarvistir tvöfalt lengri hjá hinu opinbera. Um 6% greiddra vinnustunda opinberra starfsmanna séu vegna veikindafjarvista, samanborið við 3,1% á almennum vinnumarkaði.Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, segir misskilings gæta í umræðunni. „Það er til dæmis ekki okkar upplifun og ekki í samræmi við okkar tölur að starfsmenn okkar séu eitthvað meira veikir heldur en aðrir. En þeir eru sannarlega lengur hjá okkur skráðir veikir af því að réttur þeirra er meiri innan ramma launagreiðandans.“Elliði segir að