Þingmenn Viðreisnar hafa lagt fram frumvarp um breytingu á áfengislögum sem tekur á vefverslun með áfengi. Markmiðið er að setja skýran lagaramma utan um slíka starfsemi og eyða óvissu um lögmæti innlendra vefverslana með áfengi. VEFVERSLANIR MEÐ ÁFENGI VERÐI LEYFÐAR Breytingarnar taka á gildandi einkaleyfi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, ÁTVR, á smásölu áfengis til almennings. Frumvarpið kveður á um að heimilað verði að reka vefverslun með áfengi til neytenda, að uppfylltum tilteknum skilyrðum samkvæmt lögum.Frumvarpið er nær samhljóða drögum að frumvarpi dómsmálaráðuneytisins sem birt var í samráðsgátt stjórnvalda í lok september 2024. Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar, er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.Lagt er til að heimilt verði að reka vefverslun með áfengi á grundve