Mikill meirihluti Breta myndi greiða atkvæði með því að ganga aftur í Evrópusambandið yrði slík atkvæðagreiðsla haldin nú. Nánast allir yngri Bretar vilja ganga í Evrópusambandið. Þetta kemur fram í nýrri könnun YouGov fyrir sjónvarpsstöðina ITV. Alls myndu 63 prósent Breta greiða atkvæði með því að ganga aftur í Evrópusambandið en 37 prósent gegn því. Lesa meira