Andrew Mountbatten Windsor, bróðir Karls Bretakonungs, var handtekinn í morgun á heimili sínu í Sandringham í Norfolk. Hann er grunaður um misferli í opinberu starfi.Óeinkennisklæddir lögreglumenn á ómerktum lögreglubílum komu að heimili Mountbatten Windsor í morgun klukkan átta og handtóku hann. Hann var færður í varðhald hjá Thames Valley-lögreglunni þar sem hann er enn.Lögreglan sendi frá sér yfirlýsingu þar sem sagði að karlmaður á sjötugsaldri hefði verið handtekinn vegna gruns um misferli í opinberu starfi. Mountbatten Windsor var ekki nefndur á nafn en fjölmiðlar greindu frá því á tíunda tímanum að þetta hefði verið hann.Lundúnalögreglan hafði verið að skoða ásakanir um að Mountbatten Windsor hefði deilt viðkvæmum upplýsingum með kynferðisbrotamanninum og barnaníðingnum Jeffrey Epst