Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

100 ára tónskáld bað Víking Heiðar að leika á afmælinu sínu

„Tónlist Kurtág er svo marglaga, það er eiginlega ekki hægt að tala um það, það væri eins og að reyna að útskýra ljóð, segja af hverju ljóð eru falleg eða af hverju þau snerta við manni á einhvern sérstakan hátt. En tónlistin hans er einhvers staðar mitt á milli þess að vera tónlist, og já, bara ljóð, og næstum því myndlist líka, það er mjög erfitt að lýsa því,“ segir Víkingur Heiðar Ólafsson, sem leikur í kvöld á sérstökum tónleikum til heiðurs ungverska tónskáldinu György Kurtág í Müpa tónleikasalnum í Budapest. EINSTÖK VINÁTTA „Þegar hann bað mig um að hitta sig fyrir fjórum árum þá var það bara eitthvað sem ég gleymi aldrei. Hann er svona maður sem á ekkert auðvelt með orð, hann er ekki hræddur við þögnina, og í rauninni held ég að hann kjósi frekar að hafa samskipti í gegnum tóna.
100 ára tónskáld bað Víking Heiðar að leika á afmælinu sínu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta