Bandaríkjaher er sagður reiðubúinn til árása á Íran, jafnvel um komandi helgi. Bandaríkjaforseti hefur ekki fyrirskipað árás, en hluti flota hersins er nú þegar kominn til Persaflóa og Arabíuhafs og enn er von á liðsauka.Spenna hefur stigmagnast í samskiptum Bandaríkjanna og Íran vegna nýs kjarnorkusamnings milli landanna sem ekki enn hefur tekist að ná samkomulagi um.Samninganefndir ríkjanna hafa undanfarið fundað meðal annars í Genf í Swiss og Óman en án árangurs fram til þessa. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ýjað að því að hann vilji sjá stjórnarskipti í Íran og hefur beitt yfirvöld auknum þrýstingi undanfarið og aukið herafla í Mi-Austuurlöndum. Flugmóðurskipið USS Abraham Lincoln komið er og 13 herskip til viðbótar til Persaflóa og Arabíuhafs. Þá er flugmóðurskipið USS Gerald R.