Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Öskrað með mýktinni

Skín í rauðar skotthúfur segir í vinsælu jólalagi og myndin sem teiknast upp í huga manns er líklegast af litlum börnum sem skoppa um með jólalegar húfur. Rauðar húfur hafa löngum verið vinsælar en þær geta líka falið í sér dýpri merkingu og hafa jafnvel verið bannaðar. Á Ravelry, vinsælli síðu handavinnufólks, er rauð prjónahúfa með skotti vinsælasta uppskriftin.Þetta er frekar einföld húfa með stroffkanti, sem hægt er að hafa tvöfaldan til hlýinda og endar í fléttuðum spotta með dúsk. En heitið á uppskriftinni gefur nokkuð sterklega til kynna hvað er á ferðinni. Uppskriftin heitir Melt the ICE, bræðum ísinn, og ís skrifað með stórum stöfum eins og skammstöfun bandarísku innflytjendalögreglunnar og tilgangurinn að bræða hana og mótmæla gjörðum hennar í Minneapolis undanfarið. PRJÓNAÐ TI
Öskrað með mýktinni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta