Bragi Guðbrandsson, sem var forstjóri Barnaverndarstofu í tæpan aldarfjórðung, heyrði fyrst af ofbeldi í garð fósturbarna á Bakkakoti í umfjöllun Kveiks á dögunum.Hann segir að málefni Bakkakots hafi ekki ratað á sitt borð þann tíma sem hann var forstjóri. Hann harmar atburðina og hvetur stjórnvöld til að veita fé í að bæta brotalamir í kerfinu.„Það veldur manni miklum sársauka að hlusta á þessar raunir sem þessir blessuðu dregnir gengu í gegnum. Það er ekkert öðruvísi,“ segir Bragi.Vissir þú af þessu á sínum tíma?„Ég vissi ekki um tilvist þessa heimilis einu sinni. Þetta er alveg gríðarlegt umfang. Þarna eru fósturheimili vel á annað hundrað líklega starfandi á þessum tíma og fjöldi barna í fóstri er hátt í 300.“En það kemur samt fram hér í gögnum máls að þið mæltust til þess að húsfreyja